Friday, March 9, 2012

Þrjár ÍR-stelpur úr 5. flokk valdar í Reykjavíkurúrtaki fyrir Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna.

Þrjár ÍR-stelpur Aníta, Karen og Kolfinna úr 5.fl. kvenna voru valdar í úrtak fyrir Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna sem haldið verður í Osló í sumar. Úrtakið telur 30 stelpur frá liðum í Reykjavík.  Í apríl munu þjálfarar skera niður hópinn í 10 manns sem heldur til Noregs og spilar á móti jafnöldrum sínum.

Til hamingju með þetta stelpur og við óskum ykkur góðs gengis.


Karen, Kolfinna og Aníta
Fleiri myndir má sjá á Facebook ÍR Handbolta

No comments:

Post a Comment