Wednesday, February 15, 2012

A-liðið (yngra ár) vann gull á Fjölnismótinu.

Stelpurnar á yngra ári A og B liði stóðu sig vel í þriðju umferð á íslandsmeistaramótinu hjá Fjölni síðustu helgi.
A liðið vann gullverðlaun, varð efst í annari deild og flyst upp í fyrstu deild. Frábær árangur hjá stelpunum.
A-lið frá vinstri: Selma, Díana, María, Harpa Lind, Rósa, Berglind, Stefanía, Harpa Rut,  Jóna, Katrín.
Þetta eru 4 gullverðlaunin hjá yngri flokkum ÍR núna eftir áramót. Frábær árangur áfram ÍR.
Ef þið eruð með myndir frá mótinu endilega setja þær inn á myndasíðu flokksins. Hér eru >leiðbeiningar<. Ef ykkur vantar aðstoð hafið samband við Heimi í 6635542 eða gylfason@gmail.com.
HG

2 comments:

  1. Flott hjá ykkur stelpur, til hamingju.

    ReplyDelete
  2. innilega til hamingju:D en hvenær seturu liðin fyrir 4fl leikinn um helgina?:)

    ReplyDelete